Þessari síðu hefur verið lokað
Er komin með aðra síðu hér:
Vona að þið kíkið við þar í framtíðinni og ekki gleyma að kvitta fyrir ykkur þar :o)
Takk fyrir heimsóknirnar og kommentin ykkar !
Velkomin í bloggið mitt :o)
Er komin með aðra síðu hér:
Vona að þið kíkið við þar í framtíðinni og ekki gleyma að kvitta fyrir ykkur þar :o)
Takk fyrir heimsóknirnar og kommentin ykkar !
Hæææ hóóóó..
Hvað haldið þið... litla krílið ætlar að láta aðeins bíða eftir sér...
Er búin að vera heima "vinnandi" síðan 14.04 sl. og ekkert bólar á snúllanum.
það er komin aukin pressa á mann þar sem 25. apríl (afmælið hennar Ellu systur og Rakelar og Söru) er liðinn.. og svo er 05.05.05 á morgun !!!
Ég er þegar orðin hrædd um að hann verði ekki þess dags aðnjótandi.. þar sem ekkert er farið að finnast.
Þetta er auðvitað einstaklingur í nautsmerkinu og er þar af leiðandi þrjóskur og ekki gefinn fyrir að láta ýta á eftir sér..
Hann / Hún (? best að hafa alla möguleika opna á þessum síðustu dögum ;o)) kemur víst bara þegar hann/hún er tilbúin.
Annars er allt bara fínt að frétta.
Er bara búin að flatmaga fyrir framan sjónvarpið og horfa á rykið sem ég má ekki ryksuga upp af gólfinu (doctors orders).. það er vest að ef maður gerir þetta ekki sjálfur þá gerir það víst enginn.. ;o(
En ryk er bara fyrir feita fólkið að borða eins og segir í little Britain.
Hitti Palla, Óla pabba um daginn.. það var rosa fjör.
Hef ekki hitt hann svo óralengi..
Var bara að keyra fram hjá götunni hans og sá hann í dyrinni að hleypa Óla kettinum sínum út.
Ég snarstansaði svo við lá að svört drossía hefði keyrt á mig þar sem ég var ekkert voðalega mikið að spá hvort það væri einhver bakvið mig..
Ég spillti honum frá próflestri og við fórum í bakarí og keyptum kruðerí handa okkur og Önnu Mjöll sem var einnig próflestri.
Það er svo auðvelt að spilla fólki sem á að vera að læra hehe.
Ýra og Fritz bara flutt ! Til lykke !
Hef nú reyndar ekki heyrt í þeim sjálfum en maður hefur sambönd.
Frétti líka að Thelma hyggur á breytingar og ævintýr en vill nú minnst á það minnast þar sem hún hefur sjálf ekki mikið minnst á slíkt við mig !
En eins og ég segi þá hefur maður sambönd og litla fugla sem hvísla í eyra.
Er að bíða eftir að Ella sprella kíki í heimsókn..
Alltaf gaman að fá heimsóknir.
Fer svo í mæðraskoðun næast á föstudaginn og ef ekkert er búið að gerast næsta mánudag eða þriðjudag þá á að fara að hugsa málið eins og ljósan orðaði það.
Hann kemur eventually greyið skinnið.
Er komin með heimasíðu á barnaland undir nafninu Malli Kútur Atlason check it out.
sjáumst síðar og heyrumst og þefumst... eða eitthvað hehe.
ciao
p.s Anna Panna bara að fara til Köbenhavn 14.maí ! lucky thing..
Ég fer einhverntíma sjálf, minn tími muuun koma !
hef um annað að hugsa þangað til..
eins og t.d barnseignir og brúðkaup !
svo er eurovision á næsta leiti !! gaman.
bless aftur.
Hæ hó.
Efast eitthvað um að einhver sé að skoða þessa síðu lengur.. miðað við hvað maður er nú ROSALEGA duglegur að skrifa ;p(
Það er Páskadagur og maður situr hérna útbýjaður í súkkulaði frá toppi til táar..
Bumban súkkulaði húðuð og krakkinn örugglega líka (sem sagt súkkulaði húðaður að innan sem utan.
Erum að fara í páskamat til Tengdó !
Atli orðin stressaður því hann er tilbúið að leggja afstað.. og þá er nú betra að vera viðbúin.
En hann hefur nú gott af því að bíða smá ik?
Fórum í bústaðinn á fimmtudaginn og gistum tvær litlar nætur.
Þóra, Melli og Tinnsla voru líka ásamt Óla og Sigurlaugu (sem er vinkona Þóru og Óli er vinur hans Atla).
Það var mikið étið af gæða mat og mikið haft notarlegt.
Strákarnir tóku svo upp á að hefja Palllla gerð sem var frábært..
Maður sat allan daginn og horfði á þá vinna.. (svona á lífið að vera.. vildi að ég væri alltaf ólétt.. ) annars hefði mér fundist ég þurfa að "gera" eitthvað ! hehe
Jæja verð að koma í veg fyrir að Atli setji á sig bindi sem keypt er í rúmfatalagernum og lætur hann líta út eins og fulli frændinn í partý-inu hehe.
Nei nei hann hefur ágætis smekk karlinn.
Bless á meðan people !
Ciao og gleðilega vorkomu !!!